Komin
með enn nýju síðuna, veit ekki hvað ég hef átt margar, en
kannski ég nenni að sinna þessari í einhvern tíma...

Ég fór í
eftirskoðun í dag, skoðun eftir fæðinguna, átti að fara á 6 viku en
hún hefur dregist um 5 vikur.. það var í OK..
svolítið
myndalegur læknir tók á móti mér, ungur & hress.. ég kannaðist
við hann frá því á meðgöngudeildinni & nefndi það við hann, þá
sagðist hann líka kannast við mig.. hann spjallaði aðeins of mikið
& fannst mér það frekar óþægilegt meðan hann var að skoða á mér
klofið að hann leit alltaf upp & horfði í augun á mér meðan
hann talaði við mig.. ég var frekar vandræðaleg..
Mig langar
svo að fara versla, versla á mig föt & skó, snyrtidót &
glingur, vil samt grennast áður, er ekki alveg að meika þennan maga
sem ég er með, & þessar mjaðmir, maður breytist víst aðeins
eftir að hafa gengið með barn.. Mikael verður 3 mánaða á
laugardaginn þannig ég gef þessu svona 2 mánuði í viðbót MAX 3.. þá
ætla ég að vera laus við þennan maga, & komast í flottu
gallabuxurnar mínar
dream on..
við Aron
ætlum að hitta Valdísi á morgun, hún var að koma frá Indlandi,
pæliði, Indlandi.. hún sagði mér að þar getur maður mætt fíl bara
út á götu, væri ég til í það, ELSKA fíla, finnst þetta vera svo
flott dýr...
ég ætla svo
að fara & kaupa smá í nagladótið mitt.. get þá byrjað að fara
gera neglur aftur..
í gær þá kom
Karen í heimsókn, ekkert smá gaman að chilla með skvísunni, höfðum
það mjög svo "kósý" eins & hún myndi orða það.. hehe..
spjölluðum mikið & verðum að endurtaka þetta bráðum
aftur..
svo í dag
kíktum við Aron á kaffihús með henni Svönu, æðislegt að hitta hana,
höfum ekki hist lengi lengi, samt segjum við í hvert sinn sem við
hittumst "við verðum að fara hittast oftar.." en svona er það þegar
tíminn flýgur áfram & þegar maður hugsar til baka þá er maður
ekki búinn að vera gera neitt svo merkilegt..
ég þarf að
fara redda mér poka framan á mig til að Aron geti setið í, verð að
fara komast í vinnunna meira, gera e-ð meira en raða namminu &
þrífa.. væri líka sniðugt að hafa hann faman á mér þegar ég fer að
versla, svolítið pirrandi að stóllinn hans komist ekki ofan í
kerrurnar í búðinni, jú hann passar í krónukerrurnar &
þessvegna hef ég kvatt Bónus & sagt hæ við Krónuna, líka sama
verðið næstum því..
Hugsið ykkur,
á móti sól að fara spila í Búðardal um helgina, finnst það alveg
merkilegt, held samt að ég fari ekki þar sem ég get ekki farið frá
Aron, fór samt frá honum um daginn í smá tíma, tengdó passaði, fékk
mér hálfan brjór & þurfti heim eftir klst þar sem ég var orðin
eins & Dollý parton, þið fattið kannski hvað ég
meina..
já, það er
ekki hlaupið að því að mömmurnar fari frá börnunum sínum svona
snemma, annað en þessar verur sem eru með e-ð sem kallast tippi,
ohh, get orðið svo pirruð út í þessar verur.. ég ætla sko að ala
Aron upp þannig að hann verði ekki eins & þessi tíbíski
KARLMAÐUR..!!
vælivælivæl..
ég ætti
kannski að fara sofa, & kannski finna mér tíma fyrir ræktina á
morgunn, svo fólk hætti að halda að ég taki mér þessi geðveiku dýr
til fyrirmyndar.. (getið lesið yfir færsluna aftur
ef þið fattið ekki..)
en jæja, er
að pæla að bjóða góða nótt & fara lúlla mér, lítill snáði sem
vill búbbana sína um kl 4 í nótt..!!
kveð að sinni
& takk fyrir mig..

* Eyrún *